Komdu í hópinn

Viltu vinna með samhentum hópi hjá traustu og þjónustumiðuðu fyrirtæki?

Hjá Dögum starfa um 750 manns um land allt. Við vitum að ánægt starfsfólk er lykillinn að ánægðum viðskiptavinum og þess vegna leggjum við áherslu á heilbrigt vinnuumhverfi, góða þjálfun og hrós fyrir vel unnið verk.

Skoða Laus störf
HAFA SAMBAND

Starfsfólkið okkar

Jákvætt starfsumhverfi

Jákvætt viðhorf er ómetanlegur eiginleiki sem smitar út frá sér og bætir starfsumhverfið. Adrianna, sem vinnur í bókhaldinu, mætir til vinnu á hverjum degi með jákvæðnina að leiðarljósi. 

Frumkvæði og ábyrgð

Við hvetjum starfsfólk okkar til að sýna frumkvæði og ábyrgð í einu og öllu. Premizlav, starfsmaður okkar í sérþrifum, hefur fylgt þessum gildum allt frá því að hann tók ákvörðun um að flytja til Íslands.

Helgun starfsfólks

Hjá Dögum starfa um 750 manns frá mörgum löndum. Starfsumhverfi okkar er fjölbreytt og virk þátttaka og helgun starfsfólks er lykillinn að velgengni okkar. Það skiptir Önnu miklu máli að hafa gott teymi í kringum sig og skemmtileg verkefni.

Starfsþróun

Við leggjum áherslu á starfstengda fræðslu og frá fyrsta degi fær starfsfólk þjálfun sem leggur áherslu á öryggi og tryggir rétt handtök í einu og öllu. Guðbjörg hefur starfað hjá okkur í 25 ár og hefur nýtt þekkinguna til að þróast í starfi.

Gildin okkar

Virðing

Við sýnum viðskiptavinum, verkefnum, samstarfsfólki og umhverfi okkar virðingu.

Ábyrgð

Verkin okkar tala og sýna að okkur er umhugað um hvað við gerum, hvernig við gerum það og fyrir hvern.

Frumkvæði

Allir starfsmenn okkar hafa leyfi til athafna og ætlast er til þess að þeir taki frumkvæði.

Gæði

Við erum fagfólk með ástríðu fyrir gæðum. Við skilum því sem um er samið, af alúð og fagmennsku.

Gullna brosið

Gullna brosið er viðurkenning sem starfsfólki Daga er veitt fyrir framúrskarandi störf. Viðurkenningin er grundvölluð annars vegar á endurgjöf viðskiptavina, hrósi þeirra og ábendingum og hins vegar á tilnefningum frá samstarfsfólki. Viðurkenningin er veitt mánaðarlega og auk þess er Gullna bros ársins afhent árlega.

Við hvetjum viðskiptavini til að nýta jákvæða endurgjöf til að hjálpa okkur að efla starfsánægju og skila hrósi fyrir vel unnið verk. Við hvetjum einnig starfsfólk Daga til að senda inn ábendingar um frábæra frammistöðu samstarfsfólks og hjálpa þannig til við að efla liðsanda og samstöðu.

SENDA HRÓS