Sjálfbærnistefna
Tilgangur og umfang
Sjálfbærnistefna Daga byggir á því markmiði að félagið sé leiðandi á sviði sjálfbærrar þjónustu en starfsemi Daga nær til fyrirtækja og stofnana víðs vegar um landið og gegnir því mikilvægu samfélagslegu hlutverki í þeim fyrirtækjum og stofnunum sem það þjónustar. Sjálfbærnistefnan myndar heildstæðan ramma um starfsemi félagsins á sviði sjálfbærni og er innleidd í alla starfsemi Daga. Tilgangur stefnunnar er að vera vegavísir í upplýstum ákvörðunum með hliðsjón af umhverfis-, félags- og stjórnarþáttum.
Stefna þessi nær til alls starfsfólks Daga. Dagar hafa sett sér skýr sjálfbærnimarkmið og fylgjast reglulega með árangri sínum til að tryggja stöðugar umbætur. Árlega er gefin út sjálfbærniskýrsla þar sem farið er yfir árangur félagsins.
Hlutverk og ábyrgð
Stjórn Daga ber ábyrgð á sjálfbærnistefnu og ber henni að tryggja innleiðingu hennar. Framkvæmdastjórn ber ábyrgð á innleiðingu stefnunnar og að henni sé fylgt í starfsemi félagsins. Stjórnendur bera ábyrgð á því að efni stefnunnar endurspeglist í starfsemi félagsins. Starfsfólki Daga ber að starfa samkvæmt þeim ferlum, reglum og verklýsingum sem félagið hefur innleitt.
Dagar og sjálfbærni
Dagar leggja ríka áherslu á umhverfis- og loftslagsmál. Stjórnkerfi Daga er vottað samkvæmt umhverfisstjórnunarstaðlinum ISO 14001 sem er staðfesting þess að Dagar vinna markvisst að stöðugum umbótum og markverðum árangri í umhverfismálum. Þar að auki staðfestir Svansvottun félagsins skuldbindingu þess til vistvænna vinnubragða í daglegum ræstingum.
Helstu skuldbindingar Daga í umhverfismálum eru eftirfarandi:
• Að viðhalda ISO 14001 og Svansvottun og tryggja stöðugar umbætur.
• Að draga úr kolefnisspori rekstursins með markvissum aðgerðum.
• Að draga úr sóun og úrgangsmyndum og auka flokkunarhlutfall.
• Að bjóða upp á umhverfisvænar lausnir fyrir viðskiptavini og sjálfbærar aðferðir sem draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum.
• Að stunda vistvæn innkaup og velja birgja og þjónustuaðila sem vinna eftir sömu umhverfisviðmiðum og Dagar.
• Að veita viðskiptavinum ráðgjöf og þjónustu sem stuðlar að betri umhverfisárangri og sjálfbærum lausnum.
• Að fylgjast með nýjungum og tækniþróun sem styðja við markmið fyrirtækisins og viðskiptavina í umhverfismálum
Félagslegir þættir
Jafnrétti
Dagar skuldbinda sig til stöðugra umbóta í jafnréttismálum og unnið er eftir jafnréttisstefnu- og áætlun þar sem tekið er frekar á jafnréttismálum. Við lausnir verkefna er leitast við að ná fram því besta í starfsfólki óháð kyni eða stöðu. Starfsfólk er metið að verðleikum, óháð kynferði, kynþætti, aldri, þjóðerni eða trú.
Heilsa- og öryggi
Hjá Dögum er lögð rík áhersla á öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi þar sem öryggisvitund, forvarnir og stöðugar umbætur eru í forgrunni með það að markmiði að draga úr vinnuslysum og efla heilsu og vellíðan starfsfólks. Stefnt er að slysalausri starfsemi með því að skrá öll atvik og nýta greiningar þeirra í umbótastarfi og tryggja að aðbúnaður og hollustuhættir séu eins góð og kostur er.
Starfsfólki er veitt nauðsynleg þjálfun í öryggismálum og vinnuvernd, auk þess sem skýrar og aðgengilegar upplýsingar um heilsu- og öryggismál eru sýnilegar á öllum verkstöðum. Áhætta er metin í allri starfsemi og ábyrgð stjórnenda er skýr, þannig að allir viti að öryggi starfsfólks hefur ávallt forgang.
Starfsánægja og fræðsla
Dagar leggja áherslu á að byggja upp og hlúa að jákvæðri fyrirtækjamenningu þar sem starfsfólk upplifir virðingu, ánægju í starfi og hefur tækifæri til að vaxa og þróast. Allt starf Daga á sviði mannauðsmála tengist þessum áherslum félagsins og stöðugt er unnið að því að finna nýjar leiðir til að styðja enn betur við starfsfólk og efla starfsánægju enn frekar. Þá byggir fræðslustefna Daga á markvissri starfsþjálfun sem styður bæði dagleg störf og langtímaþróun starfsfólks.
Mannréttindi og viðskiptasambönd
Dagar leggja áherslu á að bjóða upp á framúrskarandi þjónustu sem bætir vinnuumhverfi viðskiptavina og styrkir viðskiptasambönd ásamt því að styðja við rekstur viðskiptavina okkar á sjálfbæran og skilvirkan hátt.
Dagar einsetja sér að uppfylla kröfur laga, reglna og siðferðisviðmiða sem varða mannréttindi. Dagar leggja áherslu á að samstarfsaðilar fyrirtækisins deili sömu grunngildum og leitast við að tryggja að það eigi ekki í viðskiptum við aðila sem ekki virða mannréttindi.
Stjórnarhættir
Dagar leggja áherslu á ábyrga viðskiptahætti og fylgja viðurkenndum stjórnarháttum í rekstri.
Helstu skuldbindingar Daga í stjórnarháttum eru eftirfarandi:
• Að styðja við jákvæða útboðsmenningu með áhrifum sínum og stuðla að því að geirinn greiði rétt laun í stórum útboðum.
• Að upplýsa innri og ytri hagaðila um sjálfbærniáherslur Daga og meta fjárhagslega, umhverfislega og félagslega upplýsingagjöf til jafns.
• Dagar leggja upp með að taka fulla ábyrgð á hlutverki sínu í virðiskeðjunni og leggja áherslu á ábyrgt val á birgjum og ábyrg innkaup.
Dagar leitast við að vinna með birgjum og samstarfsaðilum sem deila skuldbindingu félagsins til sjálfbærni, mannréttinda og ábyrgra
viðskiptahátta.
• Dagar úthýsa sinni kjarnastarfsemi til þriðja aðila sem hlotið hafa vottun á stjórnkerfi upplýsingaöryggis samkvæmt ISO 27001. Dagar
hafa mótað sér persónuverndarstefnu.
• Siðareglur Daga tilgreina helstu lykilatriði varðandi siðferði og heiðarlega starfshætti sem eiga við í rekstri fyrirtækisins og eru leiðarljós
fyrir starfshætti, framkomu og viðhorf allra starfsmanna. Siðareglur Daga má finna á heimasíðu félagsins.
Gagnsæi
Stefna þessi var samþykkt af framkvæmdastjórn Daga í júní 2026 og skal endurskoðuð á tveggja ára fresti eða oftar.



