Dagar hafa það að markmiði að vera leiðandi á sviði sjálfbærrar þjónustu. Starfsemi Daga hefur dagleg áhrif á vinnuumhverfi tugþúsunda einstaklinga um land allt. Með notkun umhverfisvottaðra efna og sjálfbærra aðferða stuðlar félagið að heilnæmara vinnuumhverfi fyrir bæði starfsfólk og viðskiptavini.
Dagar nálgast sjálfbærni út frá svokölluðu tvöföldu mikilvægi og byggir stefna Daga á þremur grunnstoðum og sex stöðlum úr ESRS. Þessir flokkar mynda grunn að markvissri forgangsröðun og upplýstri ákvarðanatöku í sjálfbærnimálum.

Ræstingaþjónusta Daga hefur verið Svansvottuð frá 2009 ogumhverfisstjórnunarkerfi Daga hefur verið vottað samkvæmt ISO 14001 síðan 2022en Dagar voru fyrst fyrirtækja í greininni að hljóta þá vottun.
Svansvottun er vel þekkt umhverfismerki á Norðurlöndunum og er meginmarkmiðhennar að draga úr umhverfisáhrifum ræstinga. Þessar vottanir eru staðfestingþess að Dagar vinna markvisst að stöðugum umbótum og markverðum árangri ísjálfbærnimálum.


Dagar vinna eftir umhverfisstefnu sem byggir á markmiðum,aðgerðum og lykilmælikvörðum sem ná til allra helstu sviða fyrirtækisins. Dagargeta haft jákvæð umhverfisleg áhrif í gegnum vöruframboð sitt og lögð eráhersla á að bjóða viðskiptavinum upp á umhverfisvottuð hreinsiefni ogsjálfbærar aðferðir semdraga úr neikvæðumumhverfisáhrifum.
Við endurnýjun bílaflotans er markvisst horft til orkuskipta og hlutfall rafbíla í bílaflotanumhefur aukist jafnt og þétt á undanförnum árum. ÁrangurDaga í umhverfismálum erskýr og mælanlegur og árlega er greint frá árangrinum í sjálfbærniskýrslu.
MarkmiðDaga er að vera aðlaðandi vinnustaður og fyrsta val starfsfólks í sambærilegumgeira þar sem jafnrétti, öryggi, fræðsla og starfsþróun eru höfð aðleiðarljósi. Lögð er áhersla á að hjálpa starfsfólki okkar að eflast og vaxasvo viðskiptavinir okkar geri það líka.
FræðslustefnaDaga byggir á markvissri starfsþjálfun sem styður bæði dagleg störf oglangtímaþróun starfsfólks og hefur allt starfsfólk aðgang að Daga appinu sem ermiðlægur vettvangur fyrir innri upplýsingamiðlun, fræðslu og þjálfun. Mikiláhersla er lögð á íslenskukennslu sem mikilvægan þátt í inngildingu, þátttökuog starfsþróun. Notast er við stafrænan íslenskukennara sem nýtir gervigreindog íslenska máltækni í íslenskukennslunni.


Dagar hafa mótað jafnréttisstefnu- og áætlun en markmið Daga er að viðhalda jafnréttiog jöfnum tækifærum fyrir alla. Dagar leggja áherslu á að skapa öruggt oghvetjandi starfsumhverfi og eru með skýra stefnu og viðbragðsáætlun er varðaeinelti, kynbundna- og kynferðislega áreitni og ofbeldi á vinnustað. MarkmiðDaga er að vera aðlaðandi vinnustaður og fyrsta val starfsfólks í sambærilegumgeira þar sem jafnrétti, öryggi, fræðsla og starfsþróun eru höfð aðleiðarljósi.
Dagarvoru eitt af fyrstu fyrirtækjum á Íslandi til að hljóta jafnlaunavottun og hafahlotið endurvottun jafnlaunavottunar 2024-2027, sem staðfestir skuldbindinguokkar til sömu launa fyrir sambærileg störf.
Markmið Daga er að styðja við rekstur viðskiptavina okkar á sjálfbæran og skilvirkan hátt og veita framúrskarandi þjónustu sem eflir viðskiptasambönd. Til að efla og meta starfsfólk af virðingu veita Dagar tvisvar á ári Gullna brosið sem er viðurkenning sem starfsfólki Daga er veitt fyrir framúrskarandi þjónustu.
Viðurkenningin byggist á jákvæðri endurgjöf viðskiptavina og tilnefningum samstarfsfólks sem vill leggja áherslu á góða frammistöðu og þjónustulund. Árlega er framkvæmd þjónustukönnun meðal viðskiptavina Daga til að meta upplifun og ánægju þeirra.

.jpg)
Dagar byggja upp og hlúa að jákvæðri fyrirtækjamenningu þar sem starfsfólk upplifir að það tilheyri og hafi jöfn tækifæri til að vaxa og þróast. Mánaðarlega eru framkvæmdar mannauðsmælingar sem snúa að ýmsum þáttum líkt og tækifærum til vaxtar, aðbúnaði, starfsánægju, heilsu og vellíðan og hversu vel starfsfólk samsvarar sig fyrirtækinu.
Stöðugt er unnið að því að finna nýjar leiðir til að styðja enn betur við starfsfólk og efla starfsánægju enn frekar.