Styrktarstefna Daga

Styrktarstefna Daga endurspeglar skuldbindingu félagsins til að stuðla að sjálfbærri þróun og hafa jákvæð áhrif á samfélag og umhverfi. Við leggjum áherslu á að styrkja verkefni sem eru í samræmi við gildi Daga - virðingu, ábyrgð, frumkvæði og gæði - og skapa samfélagslegt virði til lengri tíma. Með styrkveitingum sínum styður Dagar Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, með sérstakri áherslu á:


Þar að auki styrkja Dagar einstök góðgerðarmál, s.s. mannúðar-, góðgerðar- og hjálparstarf. Dagar veita ekki styrki á grundvelli persónulegra hagsmuna eða viðskiptatengsla. Ekki eru veittir styrkir til verkefna sem tengjast áfengi, tóbaki, stjórnmálum eða trúmálum, né til almenns rekstrar fyrirtækja eða ferðalaga einstaklinga. Þá eru ekki styrkt verkefni sem samræmast ekki gildum eða siðareglum félagsins.Til að tryggja samræmda og gagnsæja afgreiðslu umsókna fer styrkjanefnd einungis yfir umsóknir sem berast í gegnum umsóknarform á vef félagsins. Ef þú telur að þitt verkefni falli að styrktarstefnu Daga hvetjum við þig til að fylla út umsóknarformið hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað innan 30 daga frá því umsókn berst.