Dagar hafa á ný hlotið viðurkenninguna fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri, sem Keldan og Viðskiptablaðið standa að árlega. Við erum stolt af því að vera á lista ársins 2026, sem endurspeglar traustan rekstur og fjárhagslegan styrk fyrirtækisins.
Í ár eru alls 1.780 fyrirtæki á listanum, þar af 22 opinber fyrirtæki. Fyrirtækjum fjölgar um 60 frá fyrra ári og hafa þau aldrei verið fleiri.
Keldan er upplýsingaveita um fyrirtæki og fjármálamarkaði og Viðskiptablaðið er fjölmiðill sem fjallar um viðskipti og atvinnulíf. Saman taka þau árlega saman listann á grundvelli fjárhagsupplýsinga úr ársreikningum fyrirtækja.
Til að hljóta viðurkenninguna í ár þurfafyrirtæki meðal annars að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
Viðskiptablaðið og Keldan taka jafnframt tillit til annarra þátta við matið.

Dagar tóku þátt í Mannauðsdeginum í Hörpu þar sem við áttum fjölmörg góð samtöl við gesti, kynntum þjónustu okkar og nýjar lausnir, og fengum frábærar viðtökur við nýja ræstingarvélmenninu okkar. Kara, Elías, Haraldur og Gunnar stóðu vaktina á bás Daga og tóku á móti gestum dagsins. Eitt helsta aðdráttaraflið á básnum var nýja ræstingarvélmennið okkar, sem þá var enn nafnlaust. Gestum Mannauðsdagsins gafst kostur á að taka þátt í nafnakeppni þar sem óskað var eftir tillögum að nafni á vélmennið. Viðbrögðin voru frábær og bárust yfir 115 nafnatillögur.
Gott starfsumhverfi skiptir máli, bæði fyrir fólkið sem starfar þar og árangur fyrirtækja. Í viðtali á mbl.is ræðir Elín Bogga Þrastardóttir, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Dögum, um mikilvægi þess að skapa vinnuumhverfi sem styður við vellíðan, starfsánægju og öfluga vinnustaðamenningu.