Dagar hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar þriðja árið í röð

Við erum stolt af því að hafa hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA þriðja árið í röð.

‍

Viðurkenningin var afhent í Háskóla Íslands þann 14. október og er veitt þeim sem hafa náð markmiði verkefnisins að hlutfall hvors kyns sé að lágmarki 40% í efsta stjórnendalagi.

‍

Framkvæmdastjórn Daga

Hjá Dögum trúum við því að jöfn tækifæri og fjölbreytt sjónarmið geri okkur að sterkara fyrirtæki, öflugra teymi og betri samstarfsaðila.

‍

Við leggjum áherslu á að skapa vinnuumhverfi þar sem styrkleikar hvers og eins fá að njóta sín og fólk hefur tækifæri til að vaxa og þróast í starfi.

Viðurkenningin er okkur mikil hvatning til að halda áfram að stuðla að jafnrétti og fjölbreytni í starfseminni.

Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) sem vinnur að því að jafna kynjahlutföll í æðstu stjórnunarstöðum.

‍

Við erum ánægð með að vera hluti af þessu mikilvæga verkefni og leggja okkar af mörkum til jafnari tækifæra og fjölbreyttari forystu í íslensku atvinnulífi.

Erna Karen Sigurbjörnsdóttir og Elías Sigurðsson

Í tengslum við verkefnið gróðursettu Erna Karen Sigurbjörnsdóttir og Elías Sigurðsson, starfsmenn Daga, tré í Jafnréttislundi FKA. Tréð er táknrænt áminning um að jafnrétti er eitthvað sem þarf að hlúa að og rækta

‍

‍

Tenglar
Tenglar
HAFA SAMBAND
9
.
October
2026

Frábærar viðtökur á Mannauðsdeginum í Hörpu

Dagar tóku þátt í Mannauðsdeginum í Hörpu þar sem við áttum fjölmörg góð samtöl við gesti, kynntum þjónustu okkar og nýjar lausnir, og fengum frábærar viðtökur við nýja ræstingarvélmenninu okkar. Kara, Elías, Haraldur og Gunnar stóðu vaktina á bás Daga og tóku á móti gestum dagsins. Eitt helsta aðdráttaraflið á básnum var nýja ræstingarvélmennið okkar, sem þá var enn nafnlaust. Gestum Mannauðsdagsins gafst kostur á að taka þátt í nafnakeppni þar sem óskað var eftir tillögum að nafni á vélmennið. Viðbrögðin voru frábær og bárust yfir 115 nafnatillögur.

LESA FRÉTT
1
.
October
2026

Starfsánægja vex í nærandi vinnuumhverfi

Gott starfsumhverfi skiptir máli, bæði fyrir fólkið sem starfar þar og árangur fyrirtækja. Í viðtali á mbl.is ræðir Elín Bogga Þrastardóttir, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Dögum, um mikilvægi þess að skapa vinnuumhverfi sem styður við vellíðan, starfsánægju og öfluga vinnustaðamenningu.

LESA FRÉTT
1
.
October
2026

Jónína ráðin framkvæmdastjóri mannauðs og sjálfbærni hjá Dögum

Jónína Soffía Tryggvadóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra mannauðs og sjálfbærni hjá Dögum og tekur jafnframt sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Jónína hefur starfað hjá Dögum og þekkir því starfsemi, fólk og menningu fyrirtækisins vel. Í nýju hlutverki mun hún leiða áframhaldandi uppbyggingu og þróun Daga á sviði mannauðs og sjálfbærni.

LESA FRÉTT