Starfsánægja vex í nærandi vinnuumhverfi

Gott starfsumhverfi skiptir máli, bæði fyrir fólkið sem starfar þar og árangur fyrirtækja. Í viðtali á mbl.is ræðir Elín Bogga Þrastardóttir, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Dögum, um mikilvægi þess að skapa vinnuumhverfi sem styður við vellíðan, starfsánægju og öfluga vinnustaðamenningu.

‍

„Það er góð tilfinning að tilheyra vinnustað sem vel er hugsað um.“

Hjá Dögum vinnum við á hverjum degi að því að skapa hreint, öruggt og aðlaðandi starfsumhverfi þar sem fólk getur einbeitt sér að sínum verkefnum og notið sín í vinnunni. Vinnuumhverfið er mikilvægur hluti af heildarupplifun starfsfólks og getur haft áhrif á bæði líðan, starfsánægju og upplifun af vinnustaðnum.

‍

Í viðtalinu ræðir Elín Bogga meðal annars um hvernig vel hannað og vel þjónustað vinnuumhverfi getur stutt við starfsfólk og fyrirtækjamenningu og hvers vegna það borgar sig fyrir fyrirtæki að huga markvisst að umhverfinu sem fólk starfar í.

‍

Lesið viðtalið í heild HÉR

‍

Tenglar
Tenglar
HAFA SAMBAND
1
.
October
2026

Jónína ráðin framkvæmdastjóri mannauðs og sjálfbærni hjá Dögum

Jónína Soffía Tryggvadóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra mannauðs og sjálfbærni hjá Dögum og tekur jafnframt sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Jónína hefur starfað hjá Dögum og þekkir því starfsemi, fólk og menningu fyrirtækisins vel. Í nýju hlutverki mun hún leiða áframhaldandi uppbyggingu og þróun Daga á sviði mannauðs og sjálfbærni.

LESA FRÉTT
24
.
June
2026

Ný Sjálfbærnistefna Daga

Í júní samþykkti Dagar nýja sjálfbærnistefnu sem markar mikilvægt skref í áframhaldandi þróun og ábyrgri starfsemi fyrirtækisins. Stefnan leysir af hólmi fyrri umhverfis- og starfsmannastefnu og sameinar helstu áherslur fyrirtækisins á sviði umhverfis-, félags- og stjórnarhátta í einum heildstæðum ramma.

LESA FRÉTT
20
.
April
2026

Sjálfbærniskýrsla Daga 2025

Dagar hafa gefið út sjálfbærniskýrslu fyrir árið 2025 þar fram kemur umtalsverður árangur í að draga úr umhverfisáhrifum og efla ábyrgari rekstur. Skýrslan sýnir hvernig markvissar aðgerðir á síðustu árum hafa skilað mælanlegum niðurstöðum og lagt grunn að frekari framförum í loftslags- og umhverfismálum.

LESA FRÉTT