Dagar tóku þátt í Mannauðsdeginum í Hörpu þar sem við áttum fjölmörg góð samtöl við gesti, kynntum þjónustu okkar og nýjar lausnir, og fengum frábærar viðtökur við nýja ræstingarvélmenninu okkar.

Kara, Elías, Haraldur og Gunnar stóðu vaktina á bás Daga og tóku á móti gestum dagsins.
Eitt helsta aðdráttaraflið á básnum var nýja ræstingarvélmennið okkar, sem þá var enn nafnlaust.Gestum Mannauðsdagsins gafst kostur á að taka þátt í nafnakeppni þar sem óskað var eftir tillögum að nafni á vélmennið. Viðbrögðin voru frábær og bárust yfir 115 nafnatillögur.
Úr öllum tillögunum valdi söluteymi Daga tíu nöfn sem fóru áfram í úrslit. Í kjölfarið fór fram innanhúskosning meðal starfsfólks Daga þar sem kosið var um það nafn sem þótti passa best við nýja liðsfélagann okkar.

Eftir skemmtilega kosningu meðal starfsfólks Daga varð Garpur fyrir valinu. 🤖
Við þökkum öllum sem tóku þátt í leiknum fyrir frábærar tillögur og skemmtilega þátttöku.
Gott starfsumhverfi skiptir máli, bæði fyrir fólkið sem starfar þar og árangur fyrirtækja. Í viðtali á mbl.is ræðir Elín Bogga Þrastardóttir, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Dögum, um mikilvægi þess að skapa vinnuumhverfi sem styður við vellíðan, starfsánægju og öfluga vinnustaðamenningu.
Jónína Soffía Tryggvadóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra mannauðs og sjálfbærni hjá Dögum og tekur jafnframt sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Jónína hefur starfað hjá Dögum og þekkir því starfsemi, fólk og menningu fyrirtækisins vel. Í nýju hlutverki mun hún leiða áframhaldandi uppbyggingu og þróun Daga á sviði mannauðs og sjálfbærni.
Í júní samþykkti Dagar nýja sjálfbærnistefnu sem markar mikilvægt skref í áframhaldandi þróun og ábyrgri starfsemi fyrirtækisins. Stefnan leysir af hólmi fyrri umhverfis- og starfsmannastefnu og sameinar helstu áherslur fyrirtækisins á sviði umhverfis-, félags- og stjórnarhátta í einum heildstæðum ramma.