Jónína Soffía Tryggvadóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra mannauðs og sjálfbærni hjá Dögum og tekur jafnframt sæti í framkvæmdastjórn félagsins.
Jónína hefur starfað hjá Dögum og þekkir því starfsemi, fólk og menningu fyrirtækisins vel. Í nýju hlutverki mun hún leiða áframhaldandi uppbyggingu og þróun Daga á sviði mannauðs og sjálfbærni.
Mannauður og sjálfbærni eru mikilvægir þættir í áframhaldandi þróun Daga og mun Jónína gegna lykilhlutverki í að styðja við starfsfólk, vinnustaðamenningu og markmið fyrirtækisins til framtíðar.
Við óskum Jónínu innilega til hamingju með nýja hlutverkið og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.
Lesið nánar um ráðninguna HÉR
Gott starfsumhverfi skiptir máli, bæði fyrir fólkið sem starfar þar og árangur fyrirtækja. Í viðtali á mbl.is ræðir Elín Bogga Þrastardóttir, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Dögum, um mikilvægi þess að skapa vinnuumhverfi sem styður við vellíðan, starfsánægju og öfluga vinnustaðamenningu.
Í júní samþykkti Dagar nýja sjálfbærnistefnu sem markar mikilvægt skref í áframhaldandi þróun og ábyrgri starfsemi fyrirtækisins. Stefnan leysir af hólmi fyrri umhverfis- og starfsmannastefnu og sameinar helstu áherslur fyrirtækisins á sviði umhverfis-, félags- og stjórnarhátta í einum heildstæðum ramma.
Dagar hafa gefið út sjálfbærniskýrslu fyrir árið 2025 þar fram kemur umtalsverður árangur í að draga úr umhverfisáhrifum og efla ábyrgari rekstur. Skýrslan sýnir hvernig markvissar aðgerðir á síðustu árum hafa skilað mælanlegum niðurstöðum og lagt grunn að frekari framförum í loftslags- og umhverfismálum.