Dagar hafa hlotið viðurkenningu Creditinfo sem eitt af Framúrskarandi fyrirtækjum ársins 2026, fjórða árið í röð. Aðeins 2,5% íslenskra fyrirtækja uppfylla þau ströngu skilyrði sem gerð eru til viðurkenningarinnar.
Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum sem sýna fram á traustan og ábyrgan rekstur, fjárhagslegan styrk og stöðugleika. Við matið er meðal annars horft til rekstrarafkomu, eiginfjárstöðu, lánshæfis og stjórnarhátta síðustu þriggja rekstrarára.
Samkvæmt samanburðarskýrslu Creditinfo fyrir árið 2025 eru Dagar jafnframt stærsta fyrirtækið í sinni atvinnugrein, mælt í heildareignum.
Alls hlutu 1.217 íslensk fyrirtæki viðurkenninguna í ár, en hún var afhent í Hörpu þann 28. október.
Við hjá Dögum erum afar stolt af því að vera áfram í þessum hópi. Viðurkenningin er okkur mikilvæg staðfesting á þeim trausta grunni sem við byggjum starfsemi okkar á og hvatning til að halda áfram að þróa fyrirtækið og þjónustu okkar.
Árangurinn væri ekki mögulegur án okkar öfluga starfsfólks sem leggur sig fram á hverjum degi. Við viljum jafnframt þakka viðskiptavinum okkar og samstarfsaðilum fyrir traustið og gott samstarf.
Við höldum ótrauð áfram að byggja upp öflugt þjónustufyrirtæki með það að markmiði að skapa framúrskarandi umhverfi fyrir fyrirtæki framtíðarinnar.
Þann 15. október hlutu 13 starfsmenn Daga viðurkenninguna Gullna brosið fyrir framúrskarandi störf, fagmennsku og jákvætt viðmót í starfi.
Dagar hafa á ný hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri, sem Keldan og Viðskiptablaðið standa að árlega.