Þann 15. október hlutu 13 starfsmenn Daga viðurkenninguna Gullna brosið fyrir framúrskarandi störf, fagmennsku og jákvætt viðmót í starfi.
Gullna brosið er viðurkenning sem Dagar veita starfsfólki sem skarar fram úr í starfi og hefur jákvæð áhrif á samstarfsfólk og viðskiptavini. Viðurkenningin byggir á hrósi og jákvæðri endurgjöf frá viðskiptavinum ásamt tilnefningum frá samstarfsfólki.
Með Gullna brosinu viljum við vekja athygli á því góða starfi sem unnið er á hverjum degi og þakka þeim sem leggja sig fram við að veita framúrskarandi þjónustu. Jákvæð endurgjöf og hrós skipta miklu máli og eru mikilvægur þáttur í að efla starfsánægju og góða liðsheild.
Við hjá Dögum erum afar stolt af okkar frábæra starfsfólki og þökkum öllum þeim sem hlutu viðurkenninguna fyrir metnað, jákvæðni og dýrmætt framlag.
Eftirfarandi starfsfólk hlaut Gullna brosið að þessu sinni:
Innilega til hamingju með Gullna brosið!








Dagar hafa hlotið viðurkenningu Creditinfo sem eitt af Framúrskarandi fyrirtækjum ársins 2026, fjórða árið í röð. Aðeins 2,5% íslenskra fyrirtækja uppfylla þau ströngu skilyrði sem gerð eru til viðurkenningarinnar. Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum sem sýna fram á traustan og ábyrgan rekstur, fjárhagslegan styrk og stöðugleika. Við matið er meðal annars horft til rekstrarafkomu, eiginfjárstöðu, lánshæfis og stjórnarhátta síðustu þriggja rekstrarára.
Dagar hafa á ný hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri, sem Keldan og Viðskiptablaðið standa að árlega.