Fólkið hjá Dögum - Florin Mera

Florin Mera hefur starfað hjá Dögum í nokkur ár og er duglegur að taka þátt og deila frá sínu lífi í Daga appinu. Florin er upprunalega frá Rúmeníu en flutti til Íslands árið 2007 og hefur síðan byggt hér upp bæði starfsferil sinn og einkalíf. Við fengum að kynnast Florin aðeins betur.

„Ég fæddist og ólst upp í litlum bæ í Transylvaníu í Rúmeníu. Ég flutti til Íslands sumarið 2007. Hjá Dögum starfa ég sem framlínustarfmaður. Ég lít á mig sem venjulegan starfsmann, einhvern sem mætir til vinnu, vinnur verkið sitt og er stoltur af því” segir Florin.

Florin hefur starfað hjá Dögum í um það bil fjögur til fimm ár. Nákvæmar dagsetningar skipta hann ekki miklu máli. Það sem skiptir meira máli er stöðugleiki og einbeiting, að mæta, vinna vinnuna sína og halda skýrum mörkum milli vinnu og einkalífs. Utan vinnu nýtur hann þess að vera virkur og njóta lífsins á Íslandi. „ Í frítímanum finnst mér gaman að fara í bíó, í sund, í gönguferðir og ferðast um Ísland. Einnig finnst mér alltaf gott að verja reglulega tíma í sumarbústaðnum”.

Samhliða starfi sínu stundar Florin nám við Menntaskólann í Kópavogi þar sem hann stefnir á að verða faglærður matreiðslumaður. „Eins og er er ég í námi við Menntaskólann í Kópavogi en ég byrjaði í skóla vegna starfstengdra markmiða, en líka til að hvetja son minn. Hann er mjög góður í stærðfræði og ég vil að hann hafi gaman af skólanum og sjái að menntun skiptir máli.

Þegar horft er til framtíðar eru markmið Florins skýr. „Draumurinn minn er að klára allt námið mitt og starfa sem matreiðslumaður.“

Florin er einn af virkustu notendum Daga appsins. Fyrir honum snýst virkni um að vera upplýstur og tengdur því sem er að gerast innan fyrirtækisins. „Mér finnst gaman að deila því sem ég er að gera í Daga appinu. Einnig finnst mér gott að vera virkur í appinu því ég vil vita hvað er að gerast hjá Dögum. Mér finnst sérstaklega gaman að sjá þegar fólk er að deila frá lífi og starfi.“

Að starfa í fjölmenningarlegu umhverfi hefur mótað sýn Florins, bæði persónulega og faglega. „Að vinna á fjölmenningarlegum vinnustöðum hefur hjálpað mér að öðlast meiri þekkingu og læra um aðra menningu, bæði persónulega og í starfi.“

Ferð Florins til Íslands hófst vegna persónulegra tengsla og það sem byrjaði sem heimsókn varð fljótt að varanlegri búsetu. „Ég kynntist íslenskri konu árið 2006 og hún sannfærði mig um að flytja til Íslands. Einstakir staðir hér urðu til þess að ég féll fyrir landinu. Ég kom hingað sem ferðamaður, en Ísland varð fljótt heimili mitt. Ísland hefur svo marga staði sem engin önnur lönd eiga.“

Og fyrir þau sem eru að hefja störf hjá Dögum eða eru að byrja nýtt líf í nýju landi á Florin þessi ráð: „Ef þú ert nýr hjá Dögum skaltu gefa þér tíma til að læra hvernig hvert hreinsiefni er notað og hvar það á að nota það. Það er mjög mikilvægt að blanda ekki saman efnum, því það getur valdið hættulegum efnahvörfum.

Að byrja nýtt líf í nýju landi er ekki auðvelt, en það er ekki ómögulegt. Að læra íslensku er mikill kostur og getur opnað fleiri tækifæri.“

Tenglar
Tenglar
HAFA SAMBAND
28
.
January
2026

Forysta sem byggist á trausti

Hjá Dögum hefur skapast sterkur farvegur fyrir konur til að vaxa í starfi, og er Anna Kosmala eitt skýrt dæmi um það

LESA FRÉTT
16
.
January
2026

Vinna að bættum loftgæðum og mygluvörnum

Dagar og Disact hafa hafið samstarf um að efla þjónustu við íslensk fyrirtæki og stofnanir á sviði ræstingar, loftgæða og mygluvarna.

LESA FRÉTT
5
.
January
2026

Dagar styrkja KF Döff

Dagar eru stoltir styrktaraðilar keiluliðsins KF Döff hjá ÍR, sem er skipað heyrnalausum leikmönnum og leikmönnum með mikla heyrnarskerðingu.

LESA FRÉTT