Í júní samþykkti Dagar nýja sjálfbærnistefnu sem markar mikilvægt skref í áframhaldandi þróun og ábyrgri starfsemi fyrirtækisins. Stefnan leysir af hólmi fyrri umhverfis- og starfsmannastefnu og sameinar helstu áherslur fyrirtækisins á sviði umhverfis-, félags- og stjórnarhátta í einum heildstæðum ramma.
Sjálfbærnistefnan byggir á niðurstöðum tvöfaldrar mikilvægisgreiningar sem framkvæmd var árið 2024. Með henni eru skilgreind þau málefni sem hafa mest vægi fyrir starfsemi Daga, starfsfólk, viðskiptavini og samfélagið í heild.
Hjá Dögum er lögð rík áhersla á að sjálfbærni sé hluti af daglegum rekstri og ákvarðanatöku. Fyrirtækið vinnur markvisst að því að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar og skapa jákvæð áhrif fyrir viðskiptavini, starfsfólk og samfélagið.
Eitt af því sem Dagar eru sérstaklega stoltir af er að meirihluti þeirra hreinsiefna sem notuð eru í starfseminni er umhverfisvottaður. Með því er stuðlað að betra vinnuumhverfi, auknum gæðum þjónustunnar og minni áhrifum á umhverfið.
Ný sjálfbærnistefna er liður í því að styrkja enn frekar grunn fyrirtækisins fyrir framtíðina og tryggja að sjálfbærni sé leiðarljós í allri starfsemi Daga.
Dagar hafa gefið út sjálfbærniskýrslu fyrir árið 2025 þar fram kemur umtalsverður árangur í að draga úr umhverfisáhrifum og efla ábyrgari rekstur. Skýrslan sýnir hvernig markvissar aðgerðir á síðustu árum hafa skilað mælanlegum niðurstöðum og lagt grunn að frekari framförum í loftslags- og umhverfismálum.
Í byrjun mars var viðhaldsúttekt á jafnlaunakerfi Daga og gleður okkur að segja frá því að niðurstöður úttektarinnar voru án athugasemda.
Gullna brosið er viðurkenning sem veitt er starfsfólki sem skarar fram úr fyrir fagmennsku, jákvætt viðmót og framúrskarandi þjónustu í anda Daga.