Það var bæði hátíðleg og hlýleg stund þegar Gullna brosið var afhent fimmtudaginn 19. mars. Að þessu sinni hlutu 15 starfsmenn Daga viðurkenningu og gjöf fyrir framúrskarandi framlag sitt og jákvæð áhrif í starfi.
Gullna brosið er viðurkenning sem veitt er starfsfólki sem skarar fram úr fyrir fagmennsku, jákvætt viðmót og framúrskarandi þjónustu í anda Daga. Viðurkenningin byggir annars vegar á hrósi og endurgjöf frá viðskiptavinum og hins vegar á tilnefningum frá samstarfsfólki sem vill heiðra þá sem sýna metnað, góð samskipti og einstaka þjónustulund.
Eftirtaldir starfsmenn hlutu Gullna brosið að þessu sinni:
Við óskum þeim öllum innilega til hamingju og þökkum fyrir frábær störf, jákvætt viðmót og ómetanlegt framlag 💛
Gott starfsumhverfi skiptir máli, bæði fyrir fólkið sem starfar þar og árangur fyrirtækja. Í viðtali á mbl.is ræðir Elín Bogga Þrastardóttir, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Dögum, um mikilvægi þess að skapa vinnuumhverfi sem styður við vellíðan, starfsánægju og öfluga vinnustaðamenningu.
Jónína Soffía Tryggvadóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra mannauðs og sjálfbærni hjá Dögum og tekur jafnframt sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Jónína hefur starfað hjá Dögum og þekkir því starfsemi, fólk og menningu fyrirtækisins vel. Í nýju hlutverki mun hún leiða áframhaldandi uppbyggingu og þróun Daga á sviði mannauðs og sjálfbærni.
Í júní samþykkti Dagar nýja sjálfbærnistefnu sem markar mikilvægt skref í áframhaldandi þróun og ábyrgri starfsemi fyrirtækisins. Stefnan leysir af hólmi fyrri umhverfis- og starfsmannastefnu og sameinar helstu áherslur fyrirtækisins á sviði umhverfis-, félags- og stjórnarhátta í einum heildstæðum ramma.