Pálmar Óli nýr forstjóri Daga

FRÉTTATILKYNNING  

Nýr maður í brúnna:                                                                                        

 

PÁLMAR ÓLI NÝR FORSTJÓRI DAGA

 

Pálmar Óli Magnússon hefur verið ráðinn forstjóri Daga, en fyrirtækið er leiðandi í fasteignaumsjón, ræstingum og veitingaþjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir. Pálmar Óli, sem áður var forstjóri Samskipa, tekur við stöðunni þann 1.mars nk.

 

„Dagar eru gríðarlega spennandi fyrirtæki með mikla vaxtamöguleika, enda er óvíða að finna jafn umfangsmikla þekkingu á þörfum fyrirtækja og stofnana hvað varðar fasteignaumsjón, ræstingar, þrif og veitingaþjónustu í hæsta gæðaflokki. Náið og gott samstarf við viðskiptavini Daga hefur verið aðalsmerki fyrirtækisins og verður að sjálfsögðu áfram,“ segir Pálmar Óli Magnússon, verðandi forstjóri Daga.

 

Pálmar Óli tekur við stöðunni af Guðmundi Guðmundssyni, sem lætur af störfum eftir áratugalangt og árangursríkt starf.

 

Guðmundur hefur leitt Daga af einurð í um tuttugu ár og gert það að leiðandi fyrirtæki á sínu sviði með útsjónarsemi sinni og þekkingu. Hans framlag og forysta við uppbygginu félagsins hefur verið lykilþáttur í frábærum árangri og ánægju meðal viðskiptavina og starfsmanna. Stjórn Daga færir honum einlægar þakkir fyrir störf sín,“ segir Patrick De Muynck,stjórnarformaður Daga, en Guðmundur mun áfram vera í hluthafahópi Daga og stjórninni til ráðgjafar.

 

Saga Daga nær aftur til ársins 1980 þegar Ræstingarmiðstöðin sf. var stofnuð, en hún varð síðar að ræstingardeild Securitas. Aldamótaárið 2000 keypti alþjóðlega fyrirtækið ISS A/S ræstingardeild Securitas og árið 2017 keyptu svo stjórnendur fyrirtækisins, ásamt hópi innlendra og erlendra fjárfesta, allt hlutafé fyrirtækisins.

 

Dagar eru með starfsemi á yfir 20 stöðum á landinu og þar starfa nú um 800 starfsmenn sem ræsta ríflega 720.000 fermetra hjá um 600 viðskiptavinum,sjá um húsumsjón og rekstur fasteigna og framreiða ríflega 50.000 máltíðir fyrir fyrirtæki og stofnanir. Mannauðurinn er mikill og ég hlakka mikið til að takast á við spennandi verkefni á hverjum degi hjá Dögum,“ segir Pálmar Óli.

 

Pálmar Óli var eins og áður sagði forstjóri Samskipa, þar áður framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs Landsvirkjunar. Hann er með MBA gráðu frá HÍ, CS gráðu í vélaverkfræði frá sama skóla og Dipl.Ing. í vélaverkfræði frá háskólanum í Karlsruhe í Þýskalandi. Hann er kvæntur Hildi Karlsdóttur kennara og eiga þau þrjú börn.

 

 

Tenglar
Tenglar
HAFA SAMBAND
19
.
March
2024

Fimm nýir stjórnendur hjá Dögum

Dagar hafa ráðið fimm nýja stjórnendur sem öll hafa þegar hafið störf. Þau taka einnig sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Ráðningarnar eru liður í skipulagsbreytingum hjá Dögum sem tóku gildi í byrjun árs. Breytingarnar taka mið af stefnu Daga um að skapa framúrskarandi umhverfi fyrir fyrirtæki framtíðarinnar.

LESA FRÉTT
6
.
March
2024

Gullna brosið afhent fyrir framúrskarandi störf

Tíu starfsmenn Daga fengu afhent á dögunum Gullna brosið fyrir framúrskarandi störf. Gullna brosið er viðurkenning sem grundvallast á tilnefningum frá samstarfsfólki sem og ábendingum, hrósi og endurgjöf viðskiptavina.

LESA FRÉTT
16
.
November
2023

16% starfsfólks Daga nýta sér Bara tala tungumálaforritið

Í dag, 16. nóvember, er dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur. Dagurinn er haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember ár hvert, með það að markmiði að minna á mikilvægi íslenskrar tungu og gleðjast og fagna sögu hennar, samtíð og framtíð.

LESA FRÉTT