Markviss árangur sem skiptir máli
Dagar hafa gefið út sjálfbærniskýrslu fyrir árið 2025. Þar kemur fram að losun CO₂ hefur dregist saman um 68% frá 2019 og að 60% bílaflotans eru nú rafknúin. Skýrslan sýnir einnig sterka stöðu í mannauðsmálum og aukna notkun á umhverfisvottuðum lausnum í daglegum rekstri. Hún endurspeglar áframhaldandi metnað fyrirtækisins í sjálfbærni og samfélagslegri ábyrgð.
Skýrsluna má nálgast hér: Sjálfbærniskýrsla Daga 2025 pdf.
Í júní samþykkti Dagar nýja sjálfbærnistefnu sem markar mikilvægt skref í áframhaldandi þróun og ábyrgri starfsemi fyrirtækisins. Stefnan leysir af hólmi fyrri umhverfis- og starfsmannastefnu og sameinar helstu áherslur fyrirtækisins á sviði umhverfis-, félags- og stjórnarhátta í einum heildstæðum ramma.
Í byrjun mars var viðhaldsúttekt á jafnlaunakerfi Daga og gleður okkur að segja frá því að niðurstöður úttektarinnar voru án athugasemda.
Gullna brosið er viðurkenning sem veitt er starfsfólki sem skarar fram úr fyrir fagmennsku, jákvætt viðmót og framúrskarandi þjónustu í anda Daga.