Í byrjun mars var viðhaldsúttekt á jafnlaunakerfi Daga og það gleður okkur að segja frá því að niðurstöður úttektarinnar voru án athugasemda.
Eins og fram kemur í jafnréttisstefnu Daga, skuldbinda Dagar sig til að tryggja að starfsmenn fái sambærileg laun fyrir jafn verðmæt störf og að uppfylla allar lagalegar kröfur og aðrar kröfur sem tryggja að enginn kynbundinn launamunur sé til staðar hjá félaginu. Jafnlaunavottun er ferli sem vottar að félag hafi innleitt kerfisbundnar aðgerðir til að koma í veg fyrir kynbundinn launamun. Þetta felur í sér greiningu á launakerfi og starfsháttum til að tryggja að laun séu ákveðin á grundvelli hlutlægra þátta sem tengjast starfinu og ekki kyni.
Launagreining á októberlaunum 2025 leiddi í ljós að óútskýrður launamunur innan Daga er 0,1%, sem er vel innan þeirra marka sem sett eru fram í jafnlaunastefnu og jafnréttisstefnu félagsins (+/-2%). Kynbundinn launamunur var tölfræðilega ómarktækur. Skýrihlutfall er 94%, sem telst mjög gott en skýrihlutfall segir til um hversu stór hluti launamunar skýrist með málefnalegum þáttum, eins og menntun, starfsreynslu og ábyrgð í starfi.
Jafnlaunavottun er ekki aðeins viðurkenning á árangri sem náðst hefur í baráttunni gegn launamisrétti heldur einnig yfirlýsing um framtíðarsýn Daga. Þetta eru skýr skilaboð til starfsmanna, viðskiptavina og samstarfsaðila um að félagið leggur áherslu á gagnsæi, sanngirni og jöfn réttindi allra starfsmanna.
Gullna brosið er viðurkenning sem veitt er starfsfólki sem skarar fram úr fyrir fagmennsku, jákvætt viðmót og framúrskarandi þjónustu í anda Daga.
Florin Mera, sem hefur starfað hjá Dögum í nokkur ár, er upprunalega frá Rúmeníu en flutti til Íslands árið 2007 og er þekktur fyrir virka þátttöku í Daga appinu.
Hjá Dögum hefur skapast sterkur farvegur fyrir konur til að vaxa í starfi, og er Anna Kosmala eitt skýrt dæmi um það